 |
 |
 |
Friday, March 19, 2004
Gleði - en samt sorg
Battlefield Vietnam kom út í dag. Guð minn almáttugur eini sanni - hvað mig langar ótrúlega mikið til að labba inní B.T., kaupa leikinn, fara á skjálfta og drepa og drepa og drepa. Hætta í skóla og tala ekki við nokkurn mann í svona 1-2 mánuði - eða a.m.k. þangað til maður hefur framið jafngildi þjóðarmorðs.
En það sorglega er að ég hét sjálfum mér að klára B.A. ritgerðina fyrst. Ætli það gæti ekki verið besta gulrótin. Sennilega.
posted at Friday, March 19, 2004 by Kelovic
Enn eitt spilið
Nú hafa ég og Wizards of the coast framlengt samning okkar um gerð Magic spila í seríu 9. Nýjasta spilið er MacVíðir the Lhurgoyf legend. Hver man ekki eftir Lhurgoyf spilinu skemmtilega, þar sem power og toughness fór eftir creature cards í graveyard.
MacVíðir er sérstök útgáfa af Lhurgoyf, þar sem power og toghness fer eftir fjölda hamburger spila í graveyard. Þess má geta að 9. sería Magic, the gathering verður einmitt styrkt af MacDonalds. Nafngift spils þess sem gert hefur verið um þann bíræfna Magic spilara, Víði Þórarinsson, er eingöngu tilviljun og tengist styrktaraðilum ekki neitt.

posted at Friday, March 19, 2004 by Kelovic
Friday, March 12, 2004
Goblin Polka band
Hver man ekki eftir hinu frábæra Magic spili Goblin Polka Band? Ekki ég allavega, því ég var ekki byrjaður að spila Magic þá.
Ég datt einhverntímann inní leikinn sem Microprose gáfu út árið 1996 og bættu síðan við hann árið 1997. Þar var að finna þetta magnaða spil.
Þetta er mjög gott spil. Með því að eyða 2 mana og tappa, þá getur maður tappað 1 creature fyrir hvert aukamana. En það er ekki það besta. Í leiknum kom ansi skemmtilegt lag þegar maður notaði þetta ability. Lagið er hér. Tær snilld.

posted at Friday, March 12, 2004 by Kelovic
Friday, March 05, 2004
Nýtt spil í Magic Seríu 9
Já, gott fólk, ég hef aldeilis ekki setið auðum höndum, heldur hef ég búið til nýtt spil. Spil þetta vil ég tileinka sjálfum mér. Þorkell hinn grimmi, eða Þorkell the vicious er Zombie Punk Cleric. Spil þetta kemur að góðum notum á móti þeirri viðurstyggilegu uppfinningu sem nefnist counterspell og einnig getur hann downloadað Cleric token á borðið. Download er einmitt nýtt feature í 9. seríu, en serían verður stafræn, með tengingu á alnetið.

posted at Friday, March 05, 2004 by Kelovic
Thursday, March 04, 2004
Magic the Gathering - 9. sería
Wizards of the Coast höfðu samband við mig og báðu mig um að hanna 9. seríu af Magic the Gathering. Ég hef ákveðið að hafa Íslenskt þema, þ.e. íslensk creature og íslenska galdra. Allir sem vilja leggja eitthvað til málanna eru vinsamlega beðnir um að pósta tillögur á þessa síðu.
Nú, ég hef ákveðið að leita ekki langt yfir skammt og tileinka fyrsta spilið í nýju seríunni góðvini mínum og Magic spilara hinum mesta, Einari frá Mýrum, en spilið heitir einmitt Einar from the Marshes.
Einar er þeim eiginleikum gæddur að í hvert sinn sem maður fórnar Kreatíni (sem er ákveðin tegund af Artifact í 9. seríu) er hægt að boosta Einar upp bæði í Power og Toughness, sem hann er með talsvert af fyrir. Spilið er hérna fyrir neðan.
Fleiri Magic spil síðar:

posted at Thursday, March 04, 2004 by Kelovic
Thursday, February 26, 2004
Samúðarskeyti
Vil færa Einari Hróbjarti Jónssyni mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Drengurinn hefur verið að gera tölvuna sína slarkfæra. Nýr harður diskur, netkort, skjákort o.s.frv. Heyrst hefur að minnið sé einnig nýlegt og örgjörvinn af hinni ágætustu gerð.
Tölvan hans virðist hvorki sætta sig við Windows XP home né XP pro. Netkortið virðist ekki virka í XP, bara í Win 98. Hvaða mannvonska er þetta. Ég er viss um að einhver maður sem vinnur hjá netkortaframleiðendunum SMC hefur ákveðið að nú skyldi framleiða netkort sem virkar bara í Windows 98. Þetta nær náttúrulega ekki nokkurri átt.
Svipaðar fregnir eru af Sparkle GeForce skjákorti Kalla bróður míns. Það er eins og framleiðendurnir hafi ákveðið að gera mönnum mjög erfitt fyrir að eiga þetta blessaða skjákort lengur en í 3 mánuði.
Handónýtt kort, driverarnir alger hörmung og ekki beinlínis verið að gera málin einföld.
posted at Thursday, February 26, 2004 by Kelovic
Tölvuleikir - Hinn nýji blóraböggull - part 2
Eins og ég kom inná í gær, þá leiðist mér þetta endalausa "kennum öllu öðru um en okkur sjálfum" væl sem tíðkast í félagsvísindum og félagsfræði. Hefur aldrei nokkur maður heyrt um hugtakið VILJASTYRKUR? Er allt í einu gengið út frá því að maðurinn sé gjörsamlega viljalaust gerpi sem lætur undan öllu áreiti sem að honum berst? Það er verið að líkja tölvuleikjafíkn við spilafíkn, sem síðan aftur er líkt við áfengissýki. Mest mark vil ég taka á áfengissýki og eiturlyfjafíkn vegna þess að þá er sjúklingurinn virkilega undir áhrifum áþreifanlegra efna sem eitra líkama og sál.
Þetta er einnig ekki fyrsta atlagan sem gerð er að fjölmiðli. Þegar Gutenberg hóf að prenta bækur í prentsmiðju á 13. öld, þá voru margir efins um ágæti bókarinnar. Menn töldu að bókin myndi t.d. stuðla að minnisleysi og í raun myndi menningu samfélagsins hraka.
Þegar útvarpið kom, t.a.m. á Íslandi, þá voru háværar raddir um það að fólk myndi hætta að lesa bækur. Þvert á móti, þá hafði útvarpið á Íslandi þau áhrif að bækur urðu vinsælli. Það er sennilega vegna þess að lesið var uppúr þeim á kvöldin.
Sjónvarpið er sá miðill sem ber ennþá höfuð og herðar yfir aðra miðla. Fyrir framan sjónvarpið þarf maður ekki að gera nokkurn skapaðan hlut nema sitja á rassgatinu, reyna að halda sér vakandi og troða í sig snarli á meðan buxurnar eru að springa utan af manni og heilin sljóvgast og sljóvgast. Fullkomin afþreying fyrir fólk sem hvorki hefur leikgleði né sköpunarþörf. Ekki það að ég sé að gera lítið úr þeim, það er bara ákveðin tegund af fólki hvorki betri né verri en hver önnur.
Tölvuleikir henta vel þeim sem verða helst að gera eitthvað sér til dægrastyttingar. Mér persónulega finnst leiðinlegt þegar aðalpersónan í einhverri mynd gerir eitthvað sem ég myndi ekki gera. Þess vegna hentar það mér kannski betur að vera ein af aðalpersónunum. Mér finnst líka mun skemmtilegra að gera eitthvað sem krefst notkunar á heila og samhæfingu augna og handar, heldur en að gera eitthvað sem krefst einskis. Kannski er það þess vegna sem ég á stundum erfitt með að þegja yfir bíómynd. Þegar ég var lítill vildi ég alltaf spila, lesa, horfa á sjónvarpið allt í einu og helst tala við einhvern í leiðinni. Sumir eru bara þannig.
Þá er það spurningin, eigum við að bölva tölvuleikjum, þó svo öll atriði við þá, þ.m.t. ofbeldið, séu flottari og raunverulegri en nokkru sinni fyrr? Eða eigum við að gleðjast yfir því að óþreyjufullir, þreytandi, ofvirkir og leikglaðir ofurnördar eins og ég sjálfur hafi sitt afdrep og láti hitt fólkið meira eða minna í friði? Þetta kemur félagslegri einangrun ekkert við, vegna þess að tengsl myndast á milli nördanna og þeim finnst þeir tilheyra miklu frekar einhverjum hóp en ella. Og það ætti félagsfræðineminn að vita að þegar menn tilheyra einhverjum hóp, styrkir það bæði samkennd hópsins og félagslega einingu - sem gerir aftur hópinn og einstaklinginn sterkari fyrir ANOMIE.
posted at Thursday, February 26, 2004 by Kelovic
Thursday, February 19, 2004
Tölvuleikir - hinn nýji blóraböggull
Ég horfði á fréttir Stöðvar 2 í gærkvöldi og mér gjörsamlega blöskraði. Það var semsagt einhver félagsráðgjafi sem sagði að það færðist í vöxt að unglingar væru haldnir tölvuleikjafíkn.
Ég er nú að læra félags- og fjölmiðlafræði og B.A. ritgerðin mín fjallar meðal annars um tölvunotkun. Oft ofbýður mér gjörsamlega þegar einhverjir á svipuðum slóðum á fræðasviðinu eru að segja hitt og þetta um miðla. Það er ekki nóg að kenna sjónvarpinu um ofbeldið í samfélaginu (sem var að sjálfssögðu ekki til fyrr en sjónvarpið kom til sögunnar), heldur þarf að finna nýjan blóraböggul.
Þessi félagsráðgjafi (misskiljið mig ekki, félagsráðgjafar eru að mínu mati upp til hópa mjög vandað fólk) hélt því fram að tölvuleikir og internetið stjórnuðu unglingum alveg og stuðluðu að félagslegri einangrun. Hún talaði um að strákar myndu þurfa að vinna sig upp í tölvuleikjasamfélaginu með því að verða betri en sá næsti, en að stelpur væru á spjallrásum. Ég ætla að vona að þessi ágæta manneskja hafi kannski einhver gögn sínu máli til framdráttar.
Ég hef nú stundað tölvuleiki allar götur síðan árið 1987, þegar ég fékk Commodore 64 leikjatölvuna í jólagjöf. Ég er ekkki á þeim buxunum að hætta því, vegna þess að það er staðreynd að tölvuleikir eru líka fyrir fullorðna. Annars væru þeir væntanlega ekki bannaðir innan 18 ára. Þó svo að tölvuleikir væru ekki sérstaklega ætlaðir fullorðnum, þá myndi ég samt spila þá. „Uss, 25 ára og ennþá að spila tölvuleiki" segir eflaust einhver núna. Allt í lagi, hvers vegna er það betra að liggja eins og klessa og horfa á sjónvarpið öll kvöld? Það virðist vera allt í lagi. Það er talað um að sjónvarpið sameini fjölskylduna á góðri kvöldstund. Einnig er talað um að vinir komi saman og horfi á sjónvarpið. Er það einhvað betra en að vinir hittist, tengi saman tölvur og etji kappi við hvorn annan í einhverjum leik? Ég hefði haldið að það væri öfugt.
Mig langar til gamans að tala um 10 atriði sem sjónvarpið hefur fram yfir tölvuleiki
1. Þú tekur þátt í tölvuleiknum - sjónvarp og bíómyndir mata þig með upplýsingum
2. Þú notar heilann (Manager, Roleplay-leikir, þrautaleikir)
3. Þú þjálfar samhæfingu augna og handar (Skotleikir, Spilandi fótboltaleikir, bílaleikir)
4. Þú ert sá sem ræður, tölvan gerir það sem þú segir
5. Þú fræðist um heilmargt tengt mannkynssögunni og tekur þátt í henni (Battlefield 1942, Call of Duty, Battlefield Vietnam, Delta Force Black Hawk Down, Civilization).
6. Þú getur brugðið þér í hlutverk einhvers annars og gert það með vinum þínum
7. Þú ræður því hvort vinir þínir séu með þér í liði eða á móti
8. Dagskránni lýkur þegar þér hentar
9. Tölvan birtir þér ekki staðalmyndir af því hvernig þú átt að vera
10. Leiðindi eins og innlit/útlit myndu aldrei eiga sér stað í tölvuleik, en það er oft í sjónvarpinu
Framhald á morgun...
posted at Thursday, February 19, 2004 by Kelovic
Wednesday, February 18, 2004
The Space Race
Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að skrifa formúlu að raunveruleikasjónvarpsþætti þar sem Ted Danson, Whoppi Goldberg og Vin Diesel eru send út í geim til að deyja.
The Space Race
(Með rödd mannsins sem les inná kvikmyndatrailera)
Three Outcasts...
Three bad actors...
One survivor...
They will be sent into orbit around the earth...
They will have nothing but Orbit chewing gum...
The winner gets the ultimate prize...
Vin Diesel
Whoopi Goldberg
Ted Danson
Hosted by the polish international football player, the tenacious midfielder (CM ´03-´04), Radoslaw Kaluzshny...
And the man who eats his own excrement for breakfast...the star of Lost in Space...and without a doubt the worst actor EVER, William Hurt.
THE SPACE RACE.
IF YOU CAN'T WIN, YOU´LL HAVE TO ORBIT CHEWING NOTHING BUT A BIT OF ORBIT OR A BIT OF DEHYDROGEN MONOXIDE
posted at Wednesday, February 18, 2004 by Kelovic
Thursday, February 12, 2004
Síðasta löggumyndin
Síðasta löggumyndin í bili.
Breaking even
Brad Force ( Rutger Hauer) er vikið tímabundið úr starfi sínu í lögreglu Atlanta (af því að einhverjar myndir gerast þar). Hann hafði þá verið í miðri morðrannsókn, en misst stjórnar á sér við vitnayfirheyrslur og drepið eitt vitnið. Sgt. Waters ( Ernie Hudson) heldur yfir honum mikla tölu og hann biður Brad um skjöldinn og byssuna og mælir með því að hann sæti geðrannsókn. Waters segir honum ennfremur að hann ætli að afhenda George Quinn (Jean-Claude Van Damne) starfið. Brad sættir sig við að vera vikið úr starfi og viðurkennir að hann hafi gert mistök. Hann sætir geðrannsókn og gengur það vel. Hann fylgist með málinu í sjónvarpi og blöðum og reynir ekki að taka málin í sínar hendur.
posted at Thursday, February 12, 2004 by Kelovic
|
|
 |
|
 |
|