 |
 |
 |
Tuesday, December 07, 2004
Jæja, látum þessu lokið
Það tilkynnist hér með að fjósamaðurinn er hættur að blogga hér á blogdrive. Hins vegar er kleyfhugi hans, Djákninn, kominn með færslur á síðunni www.blog.central.is/djakni.
Hvet ég ykkur til að líta á það.
Sæl að sinni.
Fjósamaður
posted at Tuesday, December 07, 2004 by Kelovic
Tuesday, June 01, 2004
Snilldarhelgi
Nú er algjörri snilldarhelgi lokið. Ég átti mjög skemmtilegan afmælisdag á föstudaginn síðasta. Um morguninn færði hún Þóra mér kassagítar að afmælisgjöf. Eftir að hún var farin í vinnuna, þá var sú ákvörðun tekin að spila á hann allan daginn. Um kvöldið var ákveðið að bjóða þremur vinum mínum frá Djúpavogi í nokkra bjóra heima hjá mér. Birgir, Róbert og Ásgeir Ævar voru að vanda kátir með lífið og tilveruna og voru mér færðar skemmtilegar gjafir í tilefni dagsins. Þ.á.m hulstur til að geyma gítarneglur, nammi og freyðivín. Eftir allmarga bjóra var ákveðið að kíkja aðeins í bæinn og var stefnan sett á að hitta Robba bróður. Þeirri stefnu var fylgt eftir, en Róberti Jóhanns týndum við tvisvar ef ekki þrisvar í bænum. Þóra fór ekki með, heldur ákvað að fara snemma í bólið, sökum mikillar þreytu. Ásgeir Ævar fór einnig snemma heim, en honum var uppálagt að leika tónlist í brullaupi ásamt Jóni 500. Þannig að afgangurinn, ég, Biggi og Róbert bróðir tókum nokkuð hressilega á því þarna um kvöldið. Fundum okkur kannski ekki alveg skemmtistaðinn og pössuðum ennþá síður inní heildarmyndina þetta kvöldið. Við skemmtum okkur þó konunglega, sérstaklega fyrir utan Hlöllabáta. Þar hittum við fyrir einhvern þrælvankaðan gaur, sem var að safna gostöppum. Við fræddum hann um kosti eggjarauða, stjörnusalats og þess að fletcha.
Haldið var uppá afmæli annarrar mætrar manneskju á sunnudaginn. Áslaug Tulinius, amma hennar Þóru varð þá 81. árs og var af því tilefni fengið sér kaffi og með því á kaffihúsi í Laugardalnum. Á sunnudaginn fór ég einnig á mína fyrstu fótboltaæfingu hjá knattspyrnufélaginu Styrk. Þó völlurinn hafði verið arfaslakur, þá líst mér bara vel á. Fjölmargir leikir framundan í sumar og ég er frekar sáttur við það.
Annars eyddi ég hvítasunnuhelginni aðallega í að vinna (slá inn gögn) og spila á gítarinn minn. Mér þykir strax mjög vænt um gripinn, en hann hefur ekki ennþá fengið nafn. Ég veit nú ekki hvort að það sé eitthvað sérstök hefð, en það virðist allavega vera hefð á mínu heimili að gefa dýrmætum hlutum nafn. Þannig verða þeir strax meiri hluti af lífi manns.
posted at Tuesday, June 01, 2004 by Kelovic
Friday, May 28, 2004
Besta afmælisgjöf ever
Hún elsku Þóra mín vakti mig klukkan hálfátta í morgun og færði mér að gjöf þennan frábæra Cedar A&L gítar. Gripurinn er framleiddur af Art & Lutherie í Kanada. Gripurinn er örlítið dekkri en sá sem er á myndinni hér að neðan. Takk, elskan. Ég er viss um að nágrannarnir verða mjög glaðir, þegar ég fer að glamra á hann í tíma og ótíma.
posted at Friday, May 28, 2004 by Kelovic
Thursday, May 27, 2004
Það sem gerðist á afmæli mínu
Af því ég á nú afmæli á morgun (það skal enn og aftur ítrekað að ég held ekki upp á það fyrr en 19. júní) þá langar mig til að fara lauslega yfir afmæli nokkurra mætra manna á þeim drottins degi 28. maí.
Afmælisbörn
Guðmundur Þorkell Guðmundsson, fjósamaður: 1979
Kylie Minogue, söngkona: 1968
Rudy Giuliany, fyrrv. borgarstjóri New York: 1944
Glen Rice, körfuboltamaður: 1967
Ian Flemming, höfundur bókanna um James Bond: 1908
Gladys Knight, söngkona í Gladys Knight and the Pips: 1944
John Fogerty, söngvari í Creedence Clearwater Revival: 1945
James Michael Tyler, leikur Gunther í Friends, 1962
Jerry West, goðsögn úr NBA körfuboltanum, 1938
Joseph I Guillotin, sá sem fann upp fallöxina, 1738
C. Wright Mills, félagsfræðingur: 1916
Salomon Ísraelskonungur: 970 f.kr.
Georg I, Englandskonungur: 1660
Eric Gerets, þjálfari Wolfsburg í Bundesligunni: 1954
Hans-Jörg Butt, Markvörður hjá Bayer-Leverkusen: 1974
Þetta voru þeir merkilegustu sem áttu afmæli þennan dag.
En það eru ekki allir sem vita það að á þessum degi árið 1981 lýsti Azerbaijan yfir sjálfstæði sínu. Á þessum degi árið 1998 ákvað Brynne Hartman að neyta óhóflegs magns af kókaíni, áfengi og þunglyndislyfja. Í kjölfarið skýtur hún eiginmann sinn, leikarann Phil Hartman (m.a. rödd Lionel Hutz, lögmanns í þáttunum um Simpson fjölskylduna) fimm skotum með þeim afleiðingum að hann deyr. Phil var sofandi kl. 05:00 um morguninn, að staðartíma, þegar eiginkona hans mætti með hólkinn inní svefnherbergið. Þegar lögreglan kemur á staðinn, sviptir Brynne sig líka af lífi með sömu byssunni.
Þannig að það má segja að þann 28. maí hafi mjög fáir afreksmenn fæðst í gegnum tíðina og má lesa það víða á vefnum að á téðri dagsetningu sé meira um hörmungar (sbr. Phil Hartman).
Tveimur dögum síðar á hins vegar Steven Gerrard, hinn stórkostlegi miðjumaður Liverpool afmæli. Vil ég árna honum heilla, þó ég eigi ekki von á að þær kveðjur verði endurgoldnar.
Ég vona því að ég geti með tíð og tíma hafið þennan mjög svo ómerkilega dag til þeirrar vegsemdar sem hann á skilið. Ég vil að lokum minna á það að þessi dagur hefur ætíð verið sólríkur, bjartur, þurr og skemmtilegur. Að minnsta kosti svo lengi sem ég man.
posted at Thursday, May 27, 2004 by Kelovic
Tuesday, May 25, 2004
Gaman að lesa sögur af sér á internetinu
Róbert Jóhannsson, A.k.a. Rúber Ámö, A.k.a D.J. Ber(Ti Jóh), A.k.a. AK97 assault rifle, er þessa dagana að skrifa ágrip af ævi minni á blogginu sínu. Reyndar er þetta ágrip af okkar kynnum sem má rekja aftur til bernskuárana á Djúpavogi. Þetta er vel gert hjá stráknum, stutt og laggott. En samt sem áður mjög minnisstæðir punktar. Lesa má allt um þetta á blogginu hans.
Takk, Rúber.
posted at Tuesday, May 25, 2004 by Kelovic
Ég á afmæli bráðum
Eftir þrjá daga mun sá leiði atburður eiga sér stað að ég verð kvartaldar gamall. Hef ég kviðið fyrir þeim tímamótum mjög lengi og sé ekki fram á annað en að ég þurfi að sætta mig við aldur minn. Það skal tekið fram að ég mun ekki halda sérstaklega upp á afmælisdaginn minn, þann 28. maí. Bið ég því íslenska aðalinn og hina fjölmörgu velunnara mína að hafa ekki sérstaklega fyrir því að færa mér gjafir þann daginn. Á hinn bóginn, þá verður haldin einhverskonar afmælis/útskriftarveisla þann 19. júní nk. Það vill reyndar svo skemmtilega til að systir mín, hún Ástríður Elvarsdóttir verður fertug sama dag. Því er tvöföld ástæða til að fagna með fjölskyldu og vinum.
Sumarinu 2004 hef ég ákveðið að verja hér í Reykjavíkurborg. Mun ég starfa hjá Vinnuskóla Reykjavíkur við leiðbeinandastörf og einnig við gagnavinnslu fyrir Þorbjörn Broddason. Því hefur verið ákveðið að halda uppá útskrift mína úr Háskóla Íslands hér í Reykjavík.
Það er kannski heimskulegt að birta einhvern óskalista fyrir afmæli. Það er barnalegt, en mér ber skylda að láta fólk vita hvað það er sem mig langar sérstaklega í - hvort sem ég óska þess í útskriftar/afmælisgjöf eða ekki. Þeir hlutir sem ég nefni hér á eftir eru mjög kostnaðarsamir og því fer víðs fjarri að ég óski þeirra að gjöf. Hins vegar væri fjárstyrkur til kaupa á hlutunum ágætlega þeginn, svo ekki sé minnst á gjafabréf.
-Mig langar í nýjann tölvuskjá. 15 tommu CTX skjárinn er alveg að ganga úr sér. Þó hefur hann þjónað mér vel og óvirðingu í hans garð mun ég ekki lýða.
-Mig langar í kassagítar. Dragon gítarinn, sem keyptur var í Hagkaup fyrir verslunarmannahelgina 2001, hefur því miður ekki ennþá verið eyðilagður. Yfirlýst markmið kaupa hans var þó alltaf að brjóta hann með tilþrifum téða verslunarmannahelgi.
-Mig langar í MP3 spilara. Ég er að verða alveg sjóðandi geðveikur á tónlistinni í Þrekhúsinu og svo væri gaman að hlusta á einhverja tónlist á skokkinu eftir Ægissíðunni í sumar.
-Mig langar í Jakkaföt. Þau jakkaföt sem þegar eru í eigu minni passa engan veginn á mig. Því miður
-Siðast en ekki síst langar mig til að sem flestir geti verið viðstaddir veisluna 19. júní og gleðjist með mér - jafnvel deili angist þeirri sem fylgir því að verða svona gamall. Í veisluna verður boðið síðar.
posted at Tuesday, May 25, 2004 by Kelovic
Tuesday, May 11, 2004
Af Sasser vírus og lokaritgerð
Sá leiði atburður átti sér stað þann 1. maí síðastliðinn að Sasser vírusinn skæði lamaði næstum allt Háskólanetið. Eigi slapp ég við hann, þrátt fyrir að ég hafi hreinsað vírusinn út með removal tólum frá Symantec, Sophos, Trend og Microsoft. Reyndar var ég of fljótur að hreinsa vírusinn, þar sem ekki var kominn út plástur fyrir Windows XP fyrr en 3. maí. Þá hafði nú eitthvað gruggugt gerst í minni ágætu tölvu. Ætla má að Longhorn Transformation pack hafi böggað 5 af mjög mikilvægum forritum í tölvunni. Norton Antivirus, Registry editor, Front Page, Dreamweaver og Photoshop. Hvernig sem á því stendur veit ég ekki. Ég hefði kannski átt að hafa vaðið fyrir neðan mig áður en ég setti upp pakkann, því höfundur að betunni tók sérstaklega fram að hann tæki ekki ábyrgð á óstöðugu stýrikerfi o.s.frv. eftir uppsetningu pakkans. Því tók Reiknistofnun Háskóla Íslands netið úr sambandi hjá mér í tvígang og er ég því svo til samskiptalaus.
Þetta blogg er þó ritað í tölvuveri Háskóla Íslands, 5 mínútum fyrir skil á lokaritgerð minni í félagsfræði, sem fjallar um internetið og notkun íslenskra ungmenna á því. Að einhverju leyti má þakka dugnaði við ritgerðarskrif þeirri staðreynd að sambandi við netið var tímabundið rift af minni íbúð og vil ég koma sérstökum þökkum á framfæri til þess ágæta manns sem skrifaði Sasser orminn. Án hanns hefði ég e.t.v. misst mig á internetinu, eins og svo oft hefur gerst í vetur.
posted at Tuesday, May 11, 2004 by Kelovic
Tuesday, April 27, 2004
Eignarhald á fjölmiðlum
Nei, ég var að hugsa um að tala sem minnst um það. Ég sjálfur er að læra fjölmiðlafræði og mér eiginlega blöskrar stundum umræðan hjá fávísum aðilum um þetta mál. Skoðun mín í stuttu máli er sú að það eiga að gilda sérstök ákvæði í samkeppnislögum um eignaraðild að fjölmiðlum. Skoðun mín er eingöngu þessi vegna þess að þetta getur haft áhrif á fyrirtæki sem ætla að auglýsa hjá ljósvakamiðlum, á útvarpsstöðvum og á dagblöðum. Ég held t.d. að fyrirtæki innan Baugs þurfi ekki að borga jafn mikið og aðrir fyrir auglýsingar á fjölmiðlum Norðurljósa. Það á að treysta stöðu og sjálfstæði miðlana sem fyrirtækja. Mér finnst persónulega ekkert athugavert við það að stór og öflug fyrirtæki fjárfesti í ljósvakamiðlum svo lengi sem þau nýti sér ekki markaðsráðandi stöðu sína til að stjórna því hvað kemur fram hjá þessum miðlum. Til að tryggja það ættu að vera samkeppnislög, innra eftirlit í fyrirtækjum og eins og áður sagði, traust til ritstjórnar miðlana.
En nóg um þetta. Í amstri dagsins er oft gott að hlusta á nokkur orkahljóð. Því hef ég ákveðið að brydda uppá orkahljóðum á Niðurhalssíðunni minni. Orkahljóðin eru úr hinum sígilda leik Warcraft 2. Hljóð þessi eru notuð algjörlega án góðfúslegs leyfis frá útgefandanum Blizzard.
Tengill á niðuhalssíðuna mína er hjá tenglum inná gestabókina og því öllu.
posted at Tuesday, April 27, 2004 by Kelovic
Monday, April 26, 2004
Ég er ekki dauður
Ég verð að biðja lesendur mína velvirðingar á þeirri gríðarlegu blogglægð sem ég hef verið í síðastliðinn mánuðinn. Ég er nú samt sem áður ekki dauður. Málið er einfaldlega það að sökum anna, þá hef ég ekki haft tíma einfaldlega til að blogga. Kærastan mín getur vottað um það að sá tími sem ég hafði aflögu síðasta mánuð fór...ekki einu sinni í að sinna henni.
Þó að þessi síðasti mánuður hafi verið erfiður, þá var hann lærdómsríkur. Fyrir þá sem ekki vita, þá var síðasti mánuður mjög annasamur í skólanum, í vinnunni, í hinni vinnunni og í gymminu. En þetta kallar maður yfir sig. Það þýðir víst ekki að væla yfir þessu.
Núna geta lesendur búist við betri tíð. Fullt af Magic Spilum, heimskulegum hljóðum úr tölvuleikjum o.s.frv.
Af mér er það að frétta að ég verð hérna í bænum í sumar. Ég er sem stendur að bíða og sjá hvort að mjög spennandi ónafngreint fyrirtæki ætli að ráða mig í vinnu í sumar og fram að jólum meira að segja. Góðar fréttir fyrir íbúa Stór-Reykjavíkur svæðisins. Ég get nú samt sem áður ekki sagt annað en að ég sakni Austurlandsins og þá sérstaklega Djúpavogs. Manni líður eins og hálfgerðum liðhlaupa. Mamma og Pabbi koma til landsins í dag, en þau hafa verið á Spáni undanfarna daga. Til stendur að halda henni móður minni veislu hér í Reykjavík þann 30. apríl nk., en það vill nú svo til að hún móðir mín verður 60 ára gömul þann 28. apríl. Ástæða dagsetningar veislunnar ku vera sú að með þeirri ráðstöfun verða öll 5 börn hennar stödd í bænum - svo ekki sé minnst á kosti þess að halda afmælisveislu um helgar.
En semsagt, allt gott að frétta af mér. Ég vil taka það semsagt fram að allar fregnir af dauða mínum eru stórlega ýktar.
posted at Monday, April 26, 2004 by Kelovic
Saturday, March 20, 2004
Austfirsk snilld
Ég finn mig knúinn til að tjá mig örlítið um þá snilld sem er að eiga sér stað fyrir austan. Það er vefsíðan www.ullarsokkurinn.com. Þarna er um að ræða afþreyingarsíðu sem greinilega hefur tekið við af undirheimum.net. Það örlar eiginlega á að maður sakni menntaskólaárana. Það er samt gott að sjá að það eru menn sem halda uppi heiðri Austfirðinga í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Ég mæli sérstaklega með að netverjar kíki á myndböndin á síðuni. Algjörlega tær snilld.
posted at Saturday, March 20, 2004 by Kelovic
|
|
 |
|
 |
|